Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Íbúð á 4. hæð í lyftuhús og stæði í bílskýli við Dalbraut 4 Akranesi. Til afhendingar strax. Falleg björt og vel skipulögð 79,2 fm íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Íbúðinni fylgir stæði í upphituðum bílakjallara. Geymsla í kjallara sem er 11,1 fm ( innifalin í heildarfermetrum íbúðar)
Innan íbúðar er rúmgott svefnherbergi með miklu skápaplássi. Rúmgott flísalagt baðherbergi með sturtu og innréttingu, gluggi á baði. Eldhús með eldaeyju, eldhús opið í rúmgóða stofu. Ísskápur og uppþvottavél í innréttingu fylgir. Inn af eldhúsi er þvottahús með innréttingu og skolvaski, innbyggt loftræstikerfi í þvottahúsi með stjórnstöð þar sem hægt er að stjórna lofstkiptum íbúðar. Úr eldhúsi er gengið út á yfirbyggðar vestursvalir með fallegu útsýni til Snæfellsjökuls.
Stór sameiginlegur garður á þaki 1. hæðar hússins sem aðrir íbúar hafa aðgang að.
Stæði í bílskýli merkt 405 í upphituðum bílakjallara. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í kjallara.
Í boði er heitur matur í hádeginu í mötuneyti á 1. hæð hússins. Þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara er á fyrstu hæð hússins.
Íbúðin getur verið laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings. Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]