Opið hús: 25. september 2026 kl. 17:30 til 18:00.Opið hús: Brúarflöt 4A, 300 Akranes, Íbúð merkt: 01 02 02. Eignin verður sýnd föstudaginn 25. september 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Rúmgóð og björt 3ja herbergja 96,5 fm íbúð á 2. hæð með stórum suðursvölum. Húsið er tveggja hæða hús byggt árið 2004.
Á 1. hæð ( jarðhæð ) er sérgeymsla íbúðar ásamt hjóla- og vagngeymslu. Undir stiga á gangi er sameiginlegt tæknirými þar sem inntök eru.
Íbúðin er skráð 89,4 fm og geymsla 7,1 fm.
Innan íbúðar eru tvö svefnherbergi, fataskápur í báðum herbergjum. Alrými samanstendur af eldhús með innréttingu, t/f uppþvottavél og innréttingaeyja, stór og rúmgóð stofa sem nýtist einnig sem borðstofa. Úr stofu er gengið út á stórar suðursvalir. Forstofa með fataskáp. Sérþvottaús innan íbúðar, innrétting og flísar á gólfi. Baðherbergi flísalagt, baðkar innrétting og handklæðaofn. Rúmgott sjónvarpshol í rými fyrir framan svefnherbergi. Parket á flestum gólfum íbúðar.
Ísskápur og uppþvottavél getur fylgt með sé þess óskað. Frábær staðsetning m.t.t. leik- og grunnskóla, verslunar og þjónustu. Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]