Opið hús: 25. september 2026 kl. 16:45 til 17:15.Opið hús: Asparskógar 5 b , 300 Akranes, Íbúð merkt: 01 01 04. Eignin verður sýnd föstudaginn 25. september 2026 milli kl. 16:45 og kl. 17:15.
Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Asparskógar 5b.-íbúð 104. Íbúðin getur verið laus fljótlega.Rúmgóð, björt og velskipulögð 58,1 fm 2ja herbergja endaíbúð á 1 hæð með sérinngangi. Svefnherbergi rúmgott með góðu skápaplássi. Forstofa og hol með stórum fataskáp. Flísalagt baðherbergi með sturtu t/f þvottavél á baði. Eldhús opið í stofu, t/f uppþvottavél í innréttingu, úr stofu er gengið út á austurverönd með skjólvegg. Geymsluskápur inn af holi með góðu skápaplássi.Parket og flísar á gólfum.
Asparskógar 5 er tveggja hæða fjölbýli byggt árið 2023. Allar íbúðir með sérinngangi. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Rafleðslustöðvar á bílastæði.
Hér er hægt að skoða 3D mynd af íbúðinni
Með því að smella hérFalleg íbúð á góðum stað á Akranesi með útivistarsvæði, golfvöll, verslun og leikskóla í göngufæri.Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]