Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Smáraflöt 20-laust strax- frábær staðsetning-einbýli á einni hæð.Einbýlishús á eftirsóttum stað, alls 124,4 fm einbýlishús á einni hæð, þar af er bílskúr skráður 37,1 fm. Húsið er timburhús byggt árið 2003 af Trésmiðjunni Akur.
Í húsinu eru tvö rúmgóð svefnherbergi, með fataskápum í báðum herbergjum. Flísalögð forstofa, og fataskápur.
Alrými sem samanstendur af stofu og eldhúsi, úr stofu er gengið út á sópall með heitum potti og skjólgirðingu. Baðherbergi með sturtuklefa, flísalagt. Þvottahús inn af holi og þaðan gengið í bílskúr, í enda bílskúrs er geymsla og þaðan gengið út á sólpall með heitum potti ( hitastýring í bílskúr ). Bílskúr er flísalagður.
Geymsluloft er annarsvegar yfir íbúðarhluta húss og svo yfir bílskúr. Parket og flísar á gólfum húss. Bílskúr og geymsla flísalagt.
Húsið getur verið laust til afhendingar strax. Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]