Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Vel skipulagt 146 fm endaraðhús á einni hæð, þar af er bílskúr skráður 34 fm. Innkeyrsla og lóð frágengin, suðursólpallur. Innan hússins eru 4 svefnherbergi, fataskápar í tveimur herbergjum. Úr hjónaherbergi er gengið út á suðursólpall.
Hol opið að hluta í stofu og svefnherbergisgang á svefnherbergisgangi er innbyggður fataskápur. Baðherbergi var endurnýjað 2016, flísalagt, lítil innrétting, baðkar og gluggi á baði.
Eldhús með nýlegri hvítri innréttingu og borðkrók. Rúmgóð stofa, úr stofu er gengið út á suðursólpall með heitum potti og skjólvegg.
Bílskúrinn er tvískiptur, parketlagt herbergi í enda bílskúrs með hurð út í garð. Rafmagn og hiti í bílskúr ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Frábær staðsetning, grunnskóli og Jaðarsbakkar, aðeins göngufæri. Endurbætur á liðnum árum að sögn seljanda: Járn á þaki endurnýjað 2023.
Gluggar og gler á suðurhlið húss endurnýjaðir.
Neysluvatnslagnir voru endurnýjaðar 2019/2020.
Rafmagnstafla endurnýjuð 2024 og 3ja fasa rafmagn fyrir bílahleðslu.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]