Ásabraut 5, 300 Akranes
118.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
172 m2
118.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2000
Brunabótamat
88.750.000
Fasteignamat
101.550.000

Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf  sími 570-4824.

172,7 fm vel skipulagt og bjart einbýlishús, með sambyggðri bílgeymslu.  Byggt úr forsteyptum veggeiningum með ljósri marmarasteiningu að utan.  Sökkull og botnplata eru steypt. Gluggar eru vandaðir ál-timburgluggar (ál að utan og timbur inni).  Þak er klætt dökkgráum þaksteinsskífum á lektum.
Húsið er með 3 svefnherbergjum inn í íbúð og aukaherbergi ásamt WC inn af bílgeymslu.
Fataskápar eru í öllum herbergjum. Bað er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum og er með sturtu.  Góðir skápar eru í bílgeymslu sem og í rúmgóðu þvottahúsi, sem er á milli íbúðar og bílgeymslu. Tæki í eldhúsinnréttingu hafa verið endurnýjuð fyrir nokkrum árum, ísskápur og uppþvottavél fylgja með.

Bílgeymsluhurð var endurnýjuð 2016 og bílgeymsla flísalögð. Ný útidyrahurð var sett inn bílgeymslu 2023. Geymsluloft er ofan við herbergi í bílgeymslu (ekki inn í m2). Hitakerfi er blandað ofna- og gólfhitakerfi. Rör í rör lagnir bæði fyrir ofnakerfi og neysluvatn.  
Lagt er fyrir snjóbræðslulögn í hellulagðri innskeyrslu en er ótengd.  Hitastýring fyrir heitan pott er í bílgeymslu, ásamt ljósa- og stýriköplum að potti. Á gólfum er parket og flísar. 3ja fasa rafmagn er í bílgeymslu.   Þá er einnig kalt stórt geymsluloft með aðgengi frá bílgeymslu.
                     
Húsið er vel staðsett innst í botnlanga og í sérlega friðsælu umhverfi -  grænt svæði í suð-vestur (garðmegin) og stutt á golfvöllinn.  Garðurinn er fallegur og snyrtilegur með nýlegri og stórri verönd ásamt heitum potti. Innkeyrsla er steypt og hellulögð, ásamt plani við hlið bílgeymslu.
 
Gott og vel með farið snyrtilegt hús – á eftirsóknarverðum stað

 

Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.