Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Falleg björt og rúmgóð 3ja herbergja endaíbúð á 2. hæð með sérinngangi og stórum suðursvölum. Íbúðin er í vesturenda húss, með sérinngangi.
Forstofa flísalögð. Tvö svefnherbergi innan íbúðar, fataskápur í báðum herbergjum. Inn af gangi er lítil geymsla. Baðherbergið er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, sturta og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, hiti í gólfi ( rafmagn ). Í alrými íbúðar er eldhús og stofa, uppþvottavél og ísskápur fylgja með. Úr stofunni er gengið út á stórar og rúmgóðar suðursvalir.
Parket á flestum gólfum, nema baði og forstofu, þar eru flísar. Sameiginleg hjóla og vagngeymsla á 1 hæð fyrir miðju hússins, þar er einnig rafmagnsmælar og vatnsinntök.
Asparskógar 21 er fjölbýlishús á tveimur hæðum. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla 1. hæð hússins, í sama rými er inntaksrými og geymslur fyrir hluta annarra íbúða.
Bílastæði eru við sitthvorn gafl hússins og framan við hús.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]