Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Vel skipulagt 176,5 fm einbýlishús á einni hæð, þar af er bílskúr skráður 40,5 fm. Húsið er skráð steypt, klætt að utan. Bílskúr með hita og rafmagni, bílagryfja og geymsla/herbergi í enda bílskúrs, klósett og vaskur í bílskúr. Innkeyrsla er malbikuð. Tveir sólpallar, annar þeirra með heitum potti.
Forstofan er flísalögð, ( hiti í gólfi ) stór fataskápur. Baðherbergi með sturtuklefa og baðkari, innrétting og mikið skápapláss á baði, hiti í gólfi baðherbergis.
Innan hússins eru 4 svefnherbergi, stofa og borðstofa. Sólpallur með heitum potti í vesturenda húss ( hitastýring í bílskúr ), útgengt frá gafli húss, steinsteypt verönd á milli sólpalls og bílskúrs. Úr stofu er gengið út á steyptan suðursólpall. Eldhús með hvít/beyki innréttingu í hluta alrýmis sem telur stofu, borðstofu og eldhús. Inn af eldhúsi er flísalagt þvottahús og þaðan útgengt.
Ljósmyndir að innan úr húsinu berast eftir páska. Eftirfarandi endurbætur hafa farið fram á húsinu að sögn seljanda:1992/1993 skolplögn viðgerð undir húsi ( skriðkjallara frá bílgryfju )
1998 járn á þaki endurnýjað
2006 Baðherbergi endurnýjað
Gluggar, gler og útihurðir ( ekki nákvæmt ártal liggur fyrir líklega í kringum 2004)
2011 ofnalagnir
2012 sólpallur og heitur pottur
2016 Loftaklæðning í húsi
2022 þakkantur yfirfarinn og þakrennur endurnýjaðar
2021/2022 neysluvatnslagnir.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]