Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Rúmgott og vel skipulagt milliraðhús á einni hæð. Innan hússins er gert ráð fyrir 4 svefnherbergjum ( eru 3 í dag og TV herbergi hægt að breyta aftur ) tvö baðherbergi. Stór suðursólpallur með skjólgirðingu og heitum potti ( rafmagn ) hleðslustöð við innkeyrslu. Innkeyrsla steypt sumarið 2025.
Forstofa og Innangengt úr forstofu í bílskúr. Bílskúr með mikilli lofthæð og millilofti, afstúkuð geymsla í enda.
Alrými með uppteknu lofti, eldhús með innbyggðum kælikáp og uppþvottavél, eldaeyja með spanhelluborði, eldaeyja úr marmara með leðuráferð.
Rúmgóð stofa sem nýtist einnig sem borðstofa, útgengt úr stofu út á sólpall.
Á svefnherbergisgangi er rúmgott þvottahús með innréttingu og góðu skápaplássi, baðherbergi flísalagt. 3 svefnherbergi og tv herbergi auk aðalbaðherbergis með sturtu og baðkari. Á svefnherbergisgangi er búið að útbúa skrifborðsaðstöðu ( skrifborð og hillur fylgja ) Í loftum er dúkur, og á gólfi parket og flísar. Skenkur á vegg í holi fylgir með.
Í heild vel skipulagt hús með mikilli lofthæð. Leikskóli aðeins steinsnar frá. Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]