Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Rými 01-0115. Fullbúið rými til afhendingar strax. Aðeins 3 rými eftir. Öll rými með lokaúttekt. Sameiginlegt tæknirými við gafl húss þar heitavatns og rafmagnsmælar eru til staðar.
Lækjarflói 11 er rúmlega 1200 fm iðnaðarhúsnæði með alls 18 iðnaðarbilum, hvert og eitt rými með salernisaðstöðu, innkeyrsluhurð sem er 4m breið og 4,2 m á hæð. Loftgluggi í hverju bili, lofthæð frá 5,1 m og 7,5 m upp í mæni.
Lóðin er malbikuð og afgirt, aksturslína meðfram lóðarmörkum, rafmagnshlið til að komast inn á lóð. Burðarvirki húss úr límtré á steyptum sökklum, yl-einingar og álklætt að utan. Sameiginlegur gólfhiti.
Nánari upplýsingar í skilalýsingu eignar.
Áhugasamir þurfa að kynna sér kynningargögn og kvaðir vegna Grænna iðngarða í Flóahverfi sem allir kaupendur húsnæðis í Flóahverfi þurfa að undirgangast, kynna sér og undirrita kvöð þess efnis, auk kynningarefnis um hugmyndafræði um Græna iðngarða í Flóahverfi á heimasíðunni floi.is Kaupendur þurfa að yfirtaka vsk kvöð eða greiða hana upp.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]