Einigrund 4, 300 Akranes
35.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
57 m2
35.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1979
Brunabótamat
33.450.000
Fasteignamat
32.450.000

Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf  sími 570-4824.

Nýtt á skrá 2ja herb. 57,9 fm íbúð á 3 hæð ( efstu ) auk geymslu í kjallara ( sem er c.a 7,1 fm og er ekki inn í fm fjölda íbúðar ) Íbúðin er fyrir miðju með stórum suðursvölum og fallegu útsýni.
Forstofa með fatahengi. Baðherbergi með baðkari, dúk á veggjum og gólfi, tengi fyrir þvottavél á baði. Eldhús með eldri dökkri innréttingu og borðkrók.
Svefnherbergi til hliðar við stofu, gott skápa og hillupláss. Stofan er rúmgóð og björt, úr stofu er gengið út á suðursvalir.
Gólfefni : Gamalt slitið parket á öllu nema svefnherbergi og baði, en þar er dúkur.
Í kjallara er sameiginleg hjóla og vagnageymsla ásamt sameiginlegu  þvottahúsi með sameiginlegri þvottavél og þurrkara auk snyrtingar.
Sérgeymsla í kjallara með opnanlegu fagi.

Endurbætur á liðnum árum :
Allar neysluvatnslagnir í húsinu, Varmaskiptir
blöndunartæki í eldhúsi og baðvaski og sturtu,
Vifta í eldhúsi
Þakkantur húss ásamt rennum og niðurfallsrennum,
Ytrabyrði útveggjar á svölum einangrað og klætt.
Eldvarnarhurðir inn í íbúðir.
Útihurð og karmar ásamt gluggum og gleri í stigagangi. 
Ofnakranar í íbúð. 
Til stendur að endurnýja járn á þaki, teppi á stigagangi og mála, LED lýsing í stigagangi og sameign í kjallara. Hússjóður er stöndugur, heildarstaða hússjóðs rúmar 20,0 millj.
 
 

Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.