Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Fallegur nýlegur 69,0 fm sumarhús byggt árið 2018, auk tæplega 15 fm gestahúss ( sem er óskráð ) og tæplega 9 fm gróðurhús á sólpalli. Lóðin er 3.974 fm leigulóð til 30 ára frá árinu 2016 að telja. Húsinu fylgir innbú að frátöldum persónulegum munum í eigu seljanda.
Sumarhúsið og gesta húsið eru bæði á steinsteyptum sökkli og með steyptri botnplötu. Hiti í gólfi beggja húsa. Í aðalhúsinu eru tvö svefnherbergi auk svefnlofts, baðherbergi við enda gangs með sturtuklefa. Alrými samanstendur af eldhús, stofu og borðstofu, úr stofu er gengið út á sólpall sem er umhverfis húsið á þrjár hliðar. Gengið er einnig út á sólpall úr enda gangs á aðalhúsi, á sólpalli er heitur pottur ( rafmagn ) Við inngang í aðalhús er þvottahús og hitatúpa staðsett. Gróður hús á sólpalli er með ofni sem er tengdur inn á húsið.
Gestahúsið er nýtt sem geymsla, niðurfall og tengingar til staðar, hiti vatn og rafmagn í gestahúsi.
Lóðarleiga á ári er um 135.000.-
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]