Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Heiðargerði 7 er einbýlishús á tveimur hæðum og bílskúr. Húsið er nýtt í dag sem tveggja íbúða hús. Húsið er skráð alls 234,3 fm.
Fasteignin er samsett úr tveimur fastanúmerum og er skráð hjá HMS :
F210-1969: 70,3 fm íbúð a 1. hæð ásamt 64 fm bílskúr.
F210-1970: 100 fm íbúð á 2. hæð auk auk forstofuherbergis á 1. hæð,
Á neðri hæð er björt 4ra herbergja íbúð með inngangi úr garði. Forstofa og þaðan gengið í stofu og eldhús. Eldhús með nýlegri innréttingu, uppþvottavél og eldhúsi fylgir með. Baðherbergi flísalagt með innréttingu og sturtuklefa. 3 svefnherbergi, öll ágætlega rúmgóð og öll með fataskáp. Inn af holi er tæknirými. Gólfhiti er í allri íbúðinni.
Á efri hæð er íbúð með svalir í norðvestur. Íbúðin er með sérinngangi og skiptist í tvö svefnherbergi, bæði með fataskáp og tvær samliggjandi stofur, ásamt forstofuherbergi með fataskáp á neðri hæð. Eldhús með eldri innréttingu, borðkrókur við glugga, inn af eldhúsi er búr. Úr eldhúsi er stigi upp í risloft. Stórt og rúmgott tvískipt baðherbergi flísalagt með innréttingu, sturtuklefa. Þvottahús er inn af baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt innréttingu.
Gólfhiti er í allri íbúðinni. Háloft með geymslurými. Tvöfalt bílastæði og stór bílskúr. Lóðin er eignarlóð.
Bílskúrinn er tvískiptur, skráður 64 fm, hluti bílskúrs nýttur sem verkstæði. Byggingarár húss er 1955, byggingarár bílskúrs er 1972. Rafmagn og hiti í bílskúr/verkstæði.
Endurbætur að sögn seljanda :Innrétting í eldhúsi íbúðar á 1. hæð endurnýjuð 2024,
Eldvarnahurð milli hæða 2024 og handrið í íbúð efri hæðar var endurnýjað 2023.
Í heild afar spennandi einbýlishús sem býður upp á ýmsa möguleika til útleigu í framtíðinni. Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]