Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Björt 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í lyftuhúsið með suðursvölum. Falleg 2ja herbergja íbúð í snyrtilegu og rólegu fjölbýli sem var tekið í notkun 2013. Komið er inn í snyrtilega sameign, físalögð forstofa og teppalagður stigagangur og stigapallur. Öll sameign er mjög snyrtileg og vel við haldið.
Íbúðin er a annarri hæð, komið inn í forstofu með fataskáp. Flísalagt baðherbergi með sturtu ásamt innréttingu og tengi fyrir þvottavél. Til hliðar við baðherbergi er rúmgott svefnherbergi með góðu skápaplássi.
Eldhús og stofa í alrými, úr stofu er gengið út á suðursvalir. Vandaðar ljósar innréttingar í íbúð.
Haustið 2022 var parket á gólfum endurnýjað og íbúðin máluð. Ljós í alrými og svefnherbergi fylgja ásamt rúllugardínum fyrir gluggum.
Íbúðinni fylgir sér geymsla í kjallara ásamt aðgengi að hjóla og vagnageymslu.
Vel við haldin sameign, lóð tyrfð og bílastæði malbikuð. Myndavélar í sameign. Unnið er að uppsetningu á rafhleðslustöðvum við blokkina.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]