Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Íbúð á 1 hæð - laus 1. feb. 2024. Rúmgóð 2ja herbergja íbúð á 1 hæð með yfirbyggðum stórum suðursvölum. Forstofan er rúmgóð, nýtist einnig sem tölvuaðstaða, flísar á gólfi forstofu.
Baðherbergi inn af forstofu, dúkur á gólfi og í kringum baðkar, tengi fyrir þvottavél á baði. Eldhús með eldri innréttingu og borðkrók, flísar á gólfi. Eldhús opið að hluta í stofu, úr stofu er gengið út á stórar yfirbyggðar suðursvalir. Hjónaherbergi til hliðar við stofu, dúkur á gólfi, stór fataskápur.
Í kjallara er sérgeymsla, ásamt sameiginlegu þvottahúsi og snyrtingu ásamt hjóla og vagnageymslu.
Endurbætur við sameign:- Endurnýjað járn á þaki 2017,
-Svalir yfirbyggðar 2017/2018,-
- Gaflar húss steinaðir að utan 2011.
- Búið að endurnýja neysluvatnslagnir upp í íbúð, tenglar og rofar í íbúð,
- Eldvarnarhurð á íbúð og sameign
- Þakkantur og rennur endurnýjaðar 2008,
- Endurnýjaðir póstkassar,
- Búið að skipta um glugga (plast) í göflum,
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]