Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Á glæsilegum útsýnisstað 285,2 fm einbýlishús. Húsið er í dag nýtt sem 2ja íbúða hús. Eignin skiptist í aðalíbúð sem er um 167,2 fm auk 43 fm bílskúrs og 53 fm íbúð á efri hæð með sérinngangi og glæsilegu útsýni af suðursvölum yfir Faxaflóa.
Í aðalíbúð eru 3 stór og rúmgóð svefnherbergi ( voru 4 svefnherbergi ) Stór og rúmgóð stofa, borðstofa og bogadreginn sólskáli með hita í gólfi, úr sólskála er gengið út á sólpall með skjólgirðingu og heitur pottur.
Eldhús með eikarinnréttingu, aðalbaðherbergi flísalagt, hiti í gólfi, innrétting, baðkar og sturta. Gestasnyrting inn af forstofu, nýlega flísalagt. Forstofa hússins er flísalögð, fataskápur. Innra hol rúmgott, inn af gangi er þvottahús, á gangi er stór fataskápur. Innangengt í eldhús af gangi og úr holi. Kamína í stofu.
Aukaíbúð: Sérinngangur, rúmgott hol með miklu skápaplássi, stigi upp á efri hæð, undir stiga er lítil geymsla. Íbúðin á efri hæð er opið rými með eldhúskrók. Baðherbergi með sturtuklefa. Úr stofu íbúðar er gengið út á rúmgóðar hellulagðar svalir með einstöku útsýni.
Bílskúrinn er rúmgóður, allur flísalagður.
Endurbætur á liðnum árum:
skolplögn var lögð ný frá lóðarmörkum meðfram húsi og inn í hús árið 2002.
Aðalbaðherbergi 2006 og gesta snyrting.
Skolplagnir húss hafa verið endurnýjaðar,
Neysluvatnslagnir heitt og kalt endurnýjaðar og ofnalagnir á efri hæð.
Innkeyrsla steypt og hellulögð með hita,
Endurnýjað gler í bílskúr og ný loftaklæðning.
Nýlegt parket á öllum herbergjum á neðri hæð.
Gler í sólstofu 2017.
Járn á þaki og þakkantur endurnýjaður 2017 og 2019,
Svalahurð og gluggi í aukaíbúð endurnýjað 2021
Heitur pottur settur upp og sólpallur settur niður á fast 2021
Sprunguviðgert og málað að utan sumarið 2022.
Nýtt gler í útihurð og öryggisgler á baði í aukaíbúð. Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]