Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð ( efstu ) ásamt tvískiptri geymslu í kjallara með glugga.
Rúmgóð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð 102,8 fm að auki 19,2 fm stór tvískipt flísalögð geymsla í kjallara alls um 122 fm. Íbúðin er í klæddu fjölbýli. Íbúðin er með 3 svefnherbergjum, fataskápur í hjónaherbergi. Forstofan er flísalögð, fataskápur. Sérþvottahús innan íbúðar við hlið baðherbergis. Eldhús með vel með farinni innréttingu, borðkrókur, t/f uppþvottavél. Baðherbergið er flísalagt, innrétting, sturtuklefi. Stofan er björt og rúmgóð, úr stofu gengið út á suðursvalir með fallegu útsýni.
Í gegnum árin hefur húsið verið vel viðhaldið og töluverðar endurbætur átt sér og fylgir yfirlit með söluyfirliti: Gaflar og suðurhlið húss var klædd að utan 2013/2014. Dyrasímar endurnýjaðir 2023. Norðurhlið klædd nokkrum árum síðar, neysluvatnslagnir í sameign og upp í íbúðir endurnýjað fyrir nokkrum árum. Búið er að endurnýja drenlögn í kringum húsið. bílastæði malbikað.
Sérlega góð staðsetning þar sem dagvistun fyrir Grundarskóla er í götunni. Til stendur að endurnýja þakkant húss og til í hússjóði upp í þær framkvæmdir.
Í kjallara er tvískipt flísalögð sérgeymsla. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla, þurrkherbergi ásamt snyrtingu í kjallara.
Húsfélagið hefur leigt út tvær geymslur til eigenda í húsinu sem áður voru snyrtingar. Íbúðin er í útleigu til 1. feb. 2024, möguleiki er á að yfirtaka núgildandi leigusamning ef áhugi er á því.
´ Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]