Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Stúdío íbúð á 2. hæð 37,2 fm og 9,1 fm suðursvalir. Íbúðin er laus fljótlega. Vel skipulögð 37,2 fm einstaklingsíbúð á 2. hæð með sérinngangi og stórum suðursvölum.
Íbúðinni fylgir uppþvottavél í eldhúsinnréttingu ásamt kæliskáp, þvottavél ( Samsung ) á baði með innbyggðum þurrkara.
Baðherbergi flísalagt ( tveir veggir ) með innréttingu, sturtu og þvottavél með sambyggðum þurrkara. Laus skápur á baði fylgir með.
Forstofan með flísalögðu gólfi. Í holi íbúðar eru geymsluskápar.
alrými er eldhús, stofa og svefnaðstaða. Eldhúsinnrétting með uppþvottavél og litlum kæliskáp. Úr stofu er gengið út á suðursvalir. Parket á öllum gólfum nema forstofu og baðherbergi.
Í sameign á 1. hæð er hjóla og vagnageymsla, íbúðinni fylgir geymsluskápur í sameign.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]