Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Rúmgott og velskipulagt 156,1 fm einbýlishús á einni hæð auk 33,9 fm bílskúr alls 190 fm.
Í húsinu eru
fjögur svefnherbergi, þrjú þeirra með fataskápum, Stofurnar eru bjartar og rúmgóðar, úr stofunum er gengið út á lokaða verönd beggja vegna hússins, heitur pottur á suðurverönd ( rafmagns ). Eldhús opið að hluta í stofu, tengi fyrir uppþvottavél, ísskápur fylgir.
Sjónvarpsstofa í svefnherbergisálmu. Innangengt í bílskúr úr húsi. Flísalagt baðherbergi með baðkari og sturtuklefa. Forstofa með stórum fataskáp. Gesta snyrting inn af holi. Þvottahús og geymsla inn af holi og þaðan gengið í bílskúr.
Gott geymslupláss í bílskúr og innréttingar. Geymsluskúr á lóð fylgir með.
Húsið er í grónu hverfi, staðsett í næsta nágrenni við Byggðasafnið að Görðum. Stór verönd bakatil og framan við hús með heitum potti ( rafmagn ).
Áhugasömum er bent á að tilboð með fyrirvara um að kaupandi eigi eftir að selja eign sína til að geta staðið við kaupin getur seljandi ekki samþykkt. Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]