Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Fallegt og vel skipulagt 147,5 fm milliraðhús á einni hæð. Sólpallur bakatil með skjólgirðingu og heitum potti, hitastýring í bílskúr. Innkeyrsla með lokuðu snjóbræðslukerfi. Varmaskiptir á neysluvatni. Innréttingar í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi frá KVIK.
Forstofan er flísalögð, góður fataskápur í forstofu.
Innra hol opið að hluta í rúmgóða stofu sem nýtist einnig sem borðstofa, úr stofu er gengið út á sólpall og baklóð.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu, uppþvottavél og ísskápur fylgja með, eldaeyja. Innan hússins eru 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, innrétting á baði, flísar á gólfi og veggjum, úr baðherbergi er hurð út á sólpall. Þvottahús með miklu skápaplássi inn af svefnherbergisgangi og þaðan gengið í flísalagðan bílskúr. LED lýsing innfelld í loftum nema svefnherbergjum, parket á flesutum gólfum nema forstofu, baði og þvottahúsi.
Fyrir framan hús er afgirt svæði með skjólgirðingu.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]