Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð byggt árið 2002. Innan hússins eru 3 herbergi, tvö þeirra með fataskáp, eitt þeirra nýtt sem sjónvarpsherbergi. Forstofa með fataskáp. Rúmgott flísalagt þvottahús inn af forstofu og þaðan gengið í flísalagðan 47,4 fm bílskúr með aukaherbergi í enda sem nýta mætti sem 4 svefnherbergið. Geymsluloft yfir húsi. Baðherbergið er rúmgott, bæði með sturtuklefa og hornbaðkari, innrétting á baði. Alrými sem samanstendur af eldhúsi með eldaeyju og borðkrók, tengi fyrir uppþvottavél, ásamt rúmgóðri stofu. Gengið út í garð úr eldhúsi, þar er stór suðursólpallur með skjólgirðingu.Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]