Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Rúmgóð og björt 3ja herbergja 86,8 fm íbúð á 3. hæð með stórum suðursvölum, íbúðinni fylgir stór tvískipt 19,2 fm geymsla/aukaherbergi í kjallara með glugga, ásamt aðgengi að sameiginlegri snyrtingu.
Innan íbúðar eru tvö svefnherbergi, bæði með parketi annað þeirra með miklu skápaplássi. Forstofan er flísalögð, stór fataskápur í forstofu. Hol opið að hluta í stofu. Eldhús með eldri innréttingu og borðkrók, parket á gólfi. Sérþvottahmús með skolvaski innan íbúðar, dúkur á gólfi. Baðherbergi með baðkari, flísar á veggjum og dúkur á gólfi. Rúmgóð og björt stofa með parketi, úr stofu er gengið út á suðursvalir.
Í sameign í kjallara er hjóla og vagnageymsla ásamt snyrtingu.
Endurbætur á liðnum árum: Múrviðgert að utan 2004, Húsið málað að utan 2005, Endurnýjaðar neysluvatnslagnir í sameign og upp í íbúð (kringum 2005), Drenlögn húss 2015. (suður, austur og vesturhlið), gluggar og gler á suður og austurhlið húss 2018, Nýr gluggi í forstofu stigahúss 2018, dyrasími og póstkassar 2019, Þvottahús málað 2020, Þak yfirfarið 2020,
Sameign í kjallara mjög snyrtileg. Keypt út þrif á sameign í kjallara og stigaganga.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á [email protected]