VALFELL fasteignamiðlun og ráðgjöf, Kirkjubraut 2, Akranesi Sími 570-4824. Sérlega falleg björt og rúmgóð 97,5 fm íbúð á 3. hæð með sérinngangi og fallegu útsýni af suðursvölum. Sérgeymsla og þvottahús innan íbúðar. Upptekin loft. Forstofan er flísalögð, stór fataskápur í forstofu. Tvö rúmgóð svefnherbergi, fataskápur í báðum herbergjum, parket á herbergjum. Baðherbergi flísalagt, baðkar og innrétting á baði. Stofan er afar rúmgóð og björt, nýtist einnig sem borðstofa, úr stofu er gengið út á rúmgóðar suðursvalir með fallegu útsýni. Inn af stofu er eldhús með eikarinnréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og borðkrók. Inn af eldhúsi er þvottahús og geymsla með flísum á gólfi.
Falleg íbúð á góðum stað.
Allar nánari uppl. veitir Hákon í síma 898-9396 eða hakon@valfell.is