Fasteignasalan Valfell sími 570-4824. Sjarmerandi 107 fm rishæð í þríbýli með sérinngangi. Innan íbúðar eru 3 svefnherbergi og stofa, auk innréttaðs rými í risi þar sem er sjónvarpsstofa og gluggalaust herbergi. ( hægt að setja Veluxglugga ) Risið er allt panelklætt. Komið er inn í forstofu á miðhæð, geymsla undir stiga. Stigi úr forstofu í ris. Rúmgóðar vestursvalir við enda gangs. Svefnherbergin eru alls þrjú, tvö þeirra með fataskápum, dúkur á tveimur herb og parket á einu. Eldhús með hvít/beyki innrétting, tengi fyrir uppþvottavél. Baðherbergi nýlega endunýjað, Lúxus sturtuklefi/baðkar, tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Þiljur á baðveggjum og parketflísar á gólfi. Stofa inn af eldhúsi, parket á stofu. úr stofu er stigi upp í innréttað panelklætt ris, parket á gólfi. Búið að stúka af sjónvarpsstofu og herbergi í risi. Rfamagnstafla endurnýjuð, neysluvatnslagnir heitt og kalt endurnýjað. Möguleiki að yfirtaka lán ( samkomulag ) Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is